Hótel Mikligarður
Góður staður á norðurlandi vestra
Hótel Mikligarður er sumarhótel staðsett í heimavist Fjölbrautaskólans Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Hér eru í boði 65 herbergi með baði (einstaklings, tveggja-, þriggja manna eða fjölskylduherbergi).
Þráðlaust net er í húsinu.
Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni og hægt er að kaupa drykki í móttöku hótelsins.
Starfsfólk okkar aðstoðar þig síðan eftir besta megni við að skipuleggja dvöl þína hér í fríinu og gera hana sem ánægjulegasta.